0
Karfan þín

Ítrekuð ábending um frumkvæðisathugun á áfengis- og vímuefnameðferðarkerfinu

Ítrekun fyrra erindis og nýjar aðstæður

8. september 2026

Þessa dagana hafa vandamál með rekstrarfyrirkomulag áfengis- og vímuefnameðferðar komið upp á yfirborðið í fréttum af afskiptum stjórnarmanna SÁÁ af faglegu starfi í meðferð samtakanna. Þetta kemur okkur í Rótinni ekki á óvart.

Við viljum því minna á að Rótin sendi embættinu árið 2023 ítarlegt erindi með ábendingu um að tilefni væri til frumkvæðisathugunar á áfengis- og vímuefnameðferðarkerfinu, með tilliti til réttar fólks með vímuefnavanda til bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu, mannréttinda, gæða, faglegra viðmiða og eftirlits.

Nýleg umfjöllun um stöðu SÁÁ sýnir að þau álitaefni sem Rótin hefur ítrekað bent á hverfa ekki að sjálfu sér. Þau varða raunverulega framkvæmd heilbrigðisþjónustu sem ríkið fjármagnar, faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsfólks, öryggi notenda, gagnsæi um opinbera samninga og ábyrgð stjórnvalda á þjónustu sem er að stórum hluta rekin af félagasamtökum.

Rótin telur að nýjustu atburðir gefi sérstakt tilefni til þess að umboðsmaður taki fyrra erindi félagsins til endurskoðunar og meti hvort nú sé ástæða til að beita frumkvæðisheimild samkvæmt 5. gr. laga um umboðsmann Alþingis nr. 85/1997. Þar kemur fram að umboðsmaður geti að eigin frumkvæði ákveðið að taka mál til meðferðar og jafnframt tekið starfsemi og málsmeðferð stjórnvalds til almennrar athugunar.

Skortur á pólitískum vilja til heildarúttektar

Rótin telur reynslu síðustu ára sýna að ólíklegt sé að nægilega ítarleg og óháð úttekt á meðferðarkerfinu fari fram án þess að sjálfstætt eftirlits- eða stjórnsýsluúrræði komi til. Félagið hefur í rúm 13 ár bent á mikilvægi breytinga, skort á gæðastarfi og veikleika í eftirliti, án þess að fram hafi farið heildstæð opinber skoðun á kerfinu.

Breytingar hjá SÁÁ og skortur á opinberri endurskoðun

Rétt er að taka fram að SÁÁ hefur birt ákveðin gögn um breytingar innan samtakanna, meðal annars ársskýrslur, gæðauppgjör, þjónustukannanir og upplýsingar um nýtt skipurit. Þar kemur fram að unnið hafi verið að skipulagsbreytingum, faglegri endurskipulagningu, skýrari ábyrgðarlínum, innra eftirliti og innleiðingu viðmiða um „clinical governance“. Slík gögn sýna að einhver breytingavinna hefur átt sér stað. Þau koma þó ekki í stað heildstæðrar, gagnsærrar og opinberrar stefnuendurskoðunar á meðferðarstarfinu, þar sem forsendur breytinga, notendasamráð, fagleg viðmið, markmið, ábyrgð, tímalína og árangursmæli-kvarðar eru sett fram með skýrum hætti.

Til samanburðar hafa sambærileg samtök sem stofnuð voru með sömu 12 spora hugmyndafræði og SÁÁ á borð við Coolmine Therapeutic Community á Írlandi birt stefnuáætlanir og opinber gögn um þróun þjónustunnar og skýrslur um endurskoðun stefnu. Það sýnir að félagasamtök sem sinna meðferð fyrir opinbert fé geta gert faglegar breytingar sýnilegar og rekjanlegar. Hér á landi er hins vegar enn óljóst hvaða heildstæða stefna liggur til grundvallar breytingum hjá SÁÁ, hvernig þær eru metnar og hvernig stjórnvöld tryggja að þær samræmist kröfum um gagnreynda, notendamiðaða og réttindamiðaða heilbrigðisþjónustu.

Kerfislægur vandi og ábyrgð ríkisins

Kerfislægur vandi áfengis- og vímuefnameðferðarkerfisins felst meðal annars í því að kerfið hefur að verulegu leyti mótast af félagasamtökum sem hafa bæði rekstrarlega og fjárhagslega hagsmuni af núverandi fyrirkomulagi. Á sama tíma hefur ríkið ekki tryggt nægilega skýr gæðaviðmið, gagnsæi, virka notendaaðkomu, rétta aðferðafræði við samráð og öflugt eftirlit með þjónustunni.

Rótin sendir hér með nýlegt erindi félagsins til heilbrigðisráðherra vegna stöðunnar hjá SÁÁ skv. fréttum í vikunni, eftirlits með þjónustusamningi Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ og skipan stýrihóps ráðherra um áfengis- og vímuefnameðferð. Í því erindi er sérstaklega bent á að ekki sé hægt að líta á stöðu SÁÁ sem innra mál samtakanna. SÁÁ sinnir miðlægri heilbrigðisþjónustu fyrir almannafé samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, og þegar faglegir stjórnendur lýsa áhyggjum af afskiptum stjórnar af faglegu starfi í heilbrigðisþjónustu vakna brýnar spurningar um faglegt sjálfstæði, stjórnarhætti, gæði, öryggi og samfellu þjónustunnar.

Stýrihópur ráðherra og aðkoma notenda

Við viljum einnig vekja sérstaka athygli embættisins á skipan stýrihóps heilbrigðisráðherra um áfengis- og vímuefnameðferðarkerfið. Rótin gerir ekki athugasemd við að veitendur þjónustu eigi aðkomu að samráði um framkvæmd þjónustu. Hins vegar er verulegt áhyggjuefni að fulltrúar stærstu rekstraraðila meðferðarúrræða, sem hafa beina fjárhagslega hagsmuni af fyrirkomulagi kerfisins, sitji í hópi sem ætlað er að skipuleggja hlutverk, ábyrgð, samhæfingu og þróun þjónustu, án þess að tryggt sé að notendur þjónustunnar, réttindasamtök og óháðir sérfræðingar eigi þar raunverulega aðkomu.

Ekki er rétt að rekstraraðilar meðferðarkerfisins séu ráðandi um þróun þess ef kerfið á að þróast í átt að notenda- og réttindamiðaðri og gagnreyndri heilbrigðisþjónustu.

Gagnsæi um þjónustusamning SÍ og SÁÁ

Rótin bíður einnig úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna ákvörðunar Sjúkratrygginga Íslands um að afmá umfangsmiklar upplýsingar úr þjónustusamningi stofnunarinnar við SÁÁ þegar félagið óskaði eftir því að fá samninginn. Þar er meðal annars um að ræða upplýsingar um magn og verð þjónustu, þjónustueiningar, greiðslufyrir-komulag, forsendur endurgjalds, umfang og skiptingu þjónustu, framkvæmd samningsins og gæðakröfur. Gagnsæi um slíkan samning er forsenda þess að almenningur, notendur þjónustunnar, aðstandendur, fagfólk og eftirlitsaðilar geti metið hvað ríkið kaupir, hvaða gæðakröfur eru gerðar og hvort opinbert fjármagn skili betri þjónustu.

Skaðaminnkun, viðhaldsmeðferð og aðgengi að þjónustu

Þá vill Rótin vekja athygli á nýlegum erindum félagsins vegna aðgengis að skaðaminnkandi þjónustu, einkum lyfjameðferð við ópíóíðafíkn sem SÁÁ er ráðandi um. Að okkar mati er sú þjónusta enn langt frá því að vera notendamiðuð og aðgengileg lágþröskuldaþjónusta fyrir þá notendur sem mest þurfa á henni að halda. Komugjöld, staðsetning þjónustu, skilyrði um innlögn og skortur á kerfisbundinni skráningu á brottfalli og árangri eru allt atriði sem varða rétt til heilbrigðisþjónustu, jafnræði og skyldur stjórnvalda gagnvart fólki í mjög jaðarsettri stöðu. Matthildarsamtökin og skaðaminnkunarþjónusta Rauða krossins eru þátttakendur í þessari baráttu.

Rótin hefur frá stofnun félagsins beitt sér fyrir breytingum á meðferðarkerfinu. Við höfum ítrekað bent á að meðferð við vímuefnavanda verður að lúta sömu grundvallarkröfum og önnur heilbrigðisþjónusta: faglegri ábyrgð, gagnreyndri þekkingu, öryggi notenda, skýrum gæðaviðmiðum, skráningu, virku eftirliti, aðgengi án mismununar og virðingu fyrir mannréttindum.

Ítrekuð alvarleg mál og skortur á uppgjöri

Rótin telur einnig mikilvægt að líta til þess að undanfarin ár hafa komið upp ítrekuð og alvarleg mál sem varða stjórnarhætti, vinnustaðamenningu, valdakerfi, öryggi notenda og meðferð viðkvæmra upplýsinga hjá SÁÁ. Fjölmiðlar hafa fjallað um átök um stjórn samtakanna, yfirlýsingar starfsfólks um ógnarstjórn og ofbeldi í samskiptum, ásakanir um kynferðisofbeldi og misnotkun yfirburðastöðu, kynferðisbrot á Vogi, vændiskaup formanns af skjólstæðingi samtakanna og alvarlegan öryggisbrest vegna sjúkragagna. Þrátt fyrir þessa löngu og alvarlegu sögu hefur hvorki hið opinbera, né SÁÁ, séð ástæðu framkvæma óháð og heildstætt uppgjör við þessi mál. Einstakar stefnur, siðareglur eða afmörkuð eftirlitsmál koma ekki í stað slíkrar skoðunar og kerfið kemst seint úr gamla farinu ef ekki er gert heiðarlegt uppgjör við fortíð sem hefur skaðað marga sem fengið hafa þjónustu í þessu kerfi.

Fagráð, hlutverkaruglingur og hagsmunaárekstrar

Rótin telur jafnframt ástæðu til að skoða skipan fagráða Embættis landlæknis á sviði áfengis- og vímuvarna með hliðsjón af hagsmunatengslum, hlutverkaruglingi og sjálfstæði faglegs ráðgjafarhlutverks embættisins. Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu eiga fagráð að vera landlækni til ráðgjafar og í þeim eiga sæti sérfróðir aðilar og fulltrúar stofnana og félagasamtaka á viðkomandi sviði. Það er því eðlilegt að þar sitji fólk með þekkingu á málaflokknum. Hins vegar þarf að gæta sérstaklega að því að fulltrúar eða stjórnendur stærstu þjónustuveitenda, eða aðilar sem tengjast menntun og starfsþjálfun heilbrigðisstétta á þessu sviði, sitji ekki í stöðu þar sem þeir geta haft óhófleg áhrif á faglega stefnumótun, viðmið, forvarnastarf eða ráðgjöf til þess stjórnvalds sem jafnframt hefur eftirlit með heilbrigðisþjónustu á sama sviði.

Þetta á sérstaklega við í litlu kerfi þar sem sami aðili getur gegnt mörgum hlutverkum samtímis: verið starfsmaður eða stjórnandi hjá þjónustuveitanda, komið að menntun eða starfsþjálfun áfengis- og vímuefnaráðgjafa, setið í ráðgefandi fagráði og haft áhrif á viðmið eða áherslur sem varða sama þjónustukerfi. Slíkt þarf ekki sjálfkrafa að fela í sér formlegt vanhæfi, en það kallar á gagnsæi, skýra hagsmunaskráningu, reglur um meðferð mála og tryggt faglegt mótvægi frá óháðum sérfræðingum, notendum þjónustunnar og réttindasamtökum.

Rótin telur því rétt að umboðsmaður skoði ekki aðeins skipan stýrihóps ráðherra um áfengis- og vímuefnameðferð, heldur einnig hvort stjórnvöld og Embætti landlæknis hafi tryggt nægar varnir gegn hlutverkaruglingi og hagsmunaárekstrum í ráðgefandi fagráðum á þessu sviði.

Beiðni Rótarinnar til umboðsmanns Alþingis

Að mati Rótarinnar sýnir framangreint að brýn þörf er á frumkvæðisathugun umboðsmanns á því hvort stjórnvöld hafi tryggt fullnægjandi eftirlit, gæðaviðmið, gagnsæi, notendavernd og ábyrgðarskyldu í áfengis- og vímuefnameðferðarkerfi sem ríkið hefur fjármagnað að verulegu leyti um áratugaskeið. Á meðan ríkið tekur ekki afgerandi afstöðu með notendum kerfisins með skýrum gæðaviðmiðum og raunverulegu gæðaeftirliti munum við áfram búa við kerfi sem stenst illa þær kröfur sem gera verður til heilbrigðisþjónustu og mannréttinda fólks með vímuefnavanda.

Með vísan til framangreinds óskar Rótin eftir því að umboðsmaður Alþingis:

  1. taki til skoðunar hvort tilefni sé til frumkvæðisathugunar á stjórnsýslu heilbrigðisráðuneytisins, Sjúkratrygginga Íslands og Embættis landlæknis vegna áfengis- og vímuefnameðferðarkerfisins
  2. meti hvort stjórnvöld hafi tryggt fullnægjandi gæðaviðmið, eftirlit, notendaaðkomu og gagnsæi í þjónustu sem ríkið kaupir af félagasamtökum á þessu sviði
  3. skoði sérstaklega hvernig ábyrgð ríkisins birtist þegar miðlæg heilbrigðisþjónusta er rekin af félagasamtökum með eigin félagsstjórn og fjárhagslega hagsmuni af fyrirkomulagi þjónustunnar
  4. taki til skoðunar hvort skipan og umboð stýrihóps ráðherra um áfengis- og vímuefnameðferð samræmist vönduðum stjórnsýsluháttum, sérstaklega með tilliti til notendaaðkomu, óhlutdrægni, gagnsæis og hagsmunaárekstra
  5. kanni hvort eftirlit með þjónustusamningi Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ sé nægilega skýrt, virkt og gagnsætt, meðal annars hvað varðar gæðakröfur, árangursmælingar, gagnaskil, skráningu og faglega ábyrgð
  6. taki til skoðunar hvort nægar varnir séu gegn hlutverkaruglingi og hagsmunaárekstrum í skipan fagráða Embættis landlæknis á sviði áfengis- og vímuvarna, sérstaklega þegar fulltrúar stærstu þjónustuveitenda eða aðilar sem koma að menntun og starfsþjálfun á þessu sviði sitja í ráðgefandi hlutverki gagnvart embættinu

Rótin vill taka fram að félagið bíður nú bæði úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna leyndar yfir þjónustusamningi SÍ og SÁÁ og viðbragða heilbrigðisráðherra við nýlegu erindi félagsins. Að mati Rótarinnar ætti það þó ekki að standa í vegi fyrir því að umboðsmaður taki málið til skoðunar. Þau mál varða afmarkaða þætti, annars vegar upplýsingarétt og hins vegar viðbrögð ráðherra við nýlegri stöðu. Beiðni Rótarinnar til umboðsmanns varðar hins vegar víðtækari spurningar um stjórnsýslu, eftirlit, gæðaviðmið, gagnsæi, hagsmunaárekstra og ábyrgð ríkisins á meðferðarkerfinu í heild.

Máli okkar til stuðnings er vísað til nokkurra ganga í heimildaskrá. Listinn er ekki tæmandi og Rótinni er ljúft að veita nánari upplýsingar óski embættið eftir því.

Virðingarfyllst, f.h. Rótarinnar,

Kristín I. Pálsdóttir, talskona

Heimildir

Rótin. 2018. „Áskorun frá ráði Rótarinnar vegna málefna unglinga í fíknivanda.“ https://rotin.is/askorun-fra-radi-rotarinnar-vegna-malefna-unglinga-i-fiknivanda/

Rótin. 2020. „Starfsemi SÁÁ – Erindi til Ríkisendurskoðunar.“ 30. ágúst 2020: https://rotin.is/starfsemi-saa/

Rótin. 2023. Réttur fólks með vímuefnavanda til fullkomnustu heilbrigðisþjónustu. Erindi til umboðsmanns Alþingis. Ábending um frumkvæðisathugun.

Rótin. 2023. Samskipti við Embætti landlæknis og SÁÁ um upplýsingar úr vistunarskrá, meðferðardaga og brottfall úr meðferð. Tölvupóstsamskipti.

Rótin. 2026. „Áskorun um niðurfellingu komugjalda og bætt líkamlegt aðgengi að viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn.“ https://rotin.is/askorun-um-nidurfellingu-komugjalda-og-baett-likamlegt-adgengi-ad-vidhaldsmedferd-vid-opioidafikn/

Rótin. 2026. „Svartir blettir á upplýsingarétti almennings.“ 27. apríl 2026: https://rotin.is/svartir-blettir-a-upplysingaretti-almennings/

Rótin. 2026. „Þröskuldar í vegi skaðaminnkunar.“ https://rotin.is/throskuldar-i-vegi-skadaminnkunar/

Rótin. 2026. Áhyggjur af stöðu meðferðarstarfs SÁÁ, eftirliti með þjónustusamningi og skipan stýrihóps um áfengis- og vímuefnameðferð. Erindi til heilbrigðisráðherra, 3. september 2026: https://rotin.is/ahyggjur-af-stodu-medferdarstarfs-saa-eftirliti-med-thjonustusamningi-og-skipan-styrihops-um-afengis-og-vimuefnamedferd/

Rótin. 2026. Viðbótargreinargerð Rótarinnar við umsögn Sjúkratrygginga Íslands, málsnr. UNU26040014: https://rotin.is/vidbotargreinargerd-vid-umsogn-sjukratrygginga-islands/

Fjölmiðlaumfjöllun um stöðu SÁÁ

RÚV. 2022. „Keypti vændi af skjólstæðingi SÁÁ.“ 24. janúar 2022.

RÚV. 2026. „Segja af sér vegna afskipta stjórnar af faglegu starfi SÁÁ.“ https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-02-segja-af-ser-vegna-afskipta-stjornar-af-faglegu-starfi-saa-485910

Vísir. 2022. „Hörður stígur fram og viðurkennir brot gegn Jódísi.“ 27. janúar 2022.

Vísir. 2026. „SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni.“ https://www.visir.is/g/20262928930d/saa-missir-for-stjora-og-yfir-laekni

Opinberar úttektir og stefnumótun

Embætti landlæknis. 2016. Hlutaúttekt. Meðferðarstofnanir SÁÁ. Úttekt Embættis landlæknis á gæðum og öryggi þjónustu í meðferð kvenna og barna: https://assets.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/u30XcwIYuuwOrhysxq2sx/a340a5d061868ce65ef2ec10defcb6d0/Sk__rsla_hluta__ttektar_hj___S____.pdf.pdf

Embætti landlæknis. 2017. Skýrsla vegna eftirfylgni. Sjúkrahúsið Vogur og meðferðarstöðin Vík: https://assets.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5YudmoEyjZ4XIvEIE33o1D/4e6202bebfcd0bdece2ab07d93cd0fb2/Eftirfylgni_uttektar_SAA.pdf

Embætti landlæknis. 2022. Úttekt. Sjúkrahúsið Vogur – ungmennadeild: https://assets.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4v4mjWAhhepaGMGpVMLmcO/11cbf4060b5ae5e93e290a91e17e27a3/Uttektarsk__rsla_emb__ttis_landl__knis__ungmennadeild____Vogi.pdf

Heilbrigðisráðuneytið. 2025. „Stýrihópur skipaður um áfengis- og vímuefnameðferðarkerfið.“ 31. mars 2025: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025/03/31/Styrihopur-skipadur-um-afengis-og-vimuefnamedferdarkerfid/

Kattau, Thomas. 2024. Review of treatment services for substance use disorders in Iceland. Unnið fyrir heilbrigðisráðuneytið: https://www.stjornarradid.is/library/?itemid=a15464d5-985a-11ef-b889-005056bcde1f Sjúkratryggingar Íslands. 2025. „Nýr heildarsamningur við SÁÁ styrkir aðgengi og gæði fíknimeðferðar.“ 19. desember 2025: https://island.is/frett/2025-12-19-nyr-heildarsamningur-vid-saa-styrkir-adgengi-og-gaedi-fiknimedferdar

Hér má lesa erindið í PDF-skjali:

DEILA