0
Karfan þín

Viðskiptaskilmálar Rótarinnar

Almennt

Á vef Rótarinnar eru í boði stök námskeið, fyrirlestrar og ráðstefnur, með upphafs- og lokadagsetningu, og lengri námskeið og fyrirlestraraðir sem þá eru boðin í lotu sem spannar ákveðin mörg skipti og klukkustundir.

Rótin áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga ásamt því að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Pantanir

Rótin tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Í kjölfar þess að greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti innan þriggja daga. Kvittunin gildir sem staðfesting á kaupunum.

Greiðslumöguleikar

Vörur eru keyptar gegn staðgreiðslu. Rótin býður upp á að greiða með kreditkorti og debetkorti í gegnum örugga greiðslusíðu frá Rapyd.

Við tökum við öllum greiðslukortum. Greiðsla mun birtast á kortayfirlitinu þínu á sama hátt og almennar færslur í verslun.

Verð

Öll verð eru birt sem íslenskur gjaldmiðill. Vinsamlegast athugið að verð getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Rótin er ekki með virðisaukaskattskylda starfsemi eða sölu á vörum með virðisaukaskatti.

Afbókanir og endurgreiðsluréttur

Mikilvægt er að hafa í huga, áður en vara í verslun er greidd að viðskiptin eru bindandi. Undantekningartilvik sem geta skapað endurgreiðslurétt eru; ef skyndileg veikindi koma upp eða alvarleg tilvik sem gera viðkomandi ófært að sækja námskeiðið/fyrirlesturinn. Hægt er að óska eftir að greiðslan verði flutt yfir á næsta námskeið/fyrirlestur sömu tegundar ef viðkomandi er ófært að mæta á keypt námskeið/fyrirlestur. Ef óskað er eftir að afbóka eða skila “vöru“ er viðkomandi velkomið að senda tölvupóst á rotin@rotin.is.

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Trúnaður

Rótin heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað. Skilmálar þessir gilda frá 1. mars 2023.

Rótin – Félag um velferð og vellíðan kvenna
Reykjabyggð 34
270 Mosfellsbær

Tölvupóstfang: rotin@rotin.is
Sími: 793-0090
Kt: 5005130470
VSK númer: Rótin er ekki með virðisaukarekstur