0
Karfan þín

Gagnagátt fyrir félags- og heilbrigðisúrræði á Íslandi

Rótin hefur lengi bent á nauðsyn þess að bæta aðgengi að upplýsingum um þau úrræði sem standa til boða innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu á Íslandi. Jafnframt hefur félagið lagt áherslu á að aukið gagnsæi, skýrari yfirsýn og markvissari gagnasöfnun séu lykilforsendur gæðastarfs og skilvirkari þjónustu.

Ástæða þess að ráðist var í að taka saman greinargerð um gagnagáttir má rekja til þess að Rótarkonur hafa um árabil tekið þátt í stefnumótun og samráði þar sem skortur á yfirsýn, samhæfingu og skýru skipulagi úrræða er þrástef. Þá er einnig verulegur skortur á rannsóknum og tölfræði og ítrekað hefur borið á tregðu hjá þjónustuaðilum og opinberum stofnunum við að afhenda gögn, þar á meðal samninga hins opinbera, árangur, tölfræði um atvik í þjónustu og aðrar upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir gagnsæi og gæðastarf.

Þegar rætt er um gagnagáttir er jafnframt ljóst að hugtakið er oft túlkað með mismunandi hætti og að ekki er alltaf nægileg vitund um það hagnýta gildi og þá möguleika sem slíkt verkfæri getur haft fyrir notendur, fagfólk, þjónustuaðila og stjórnvöld.

Með þessari greinargerð vill Rótin leggja fram málefnalegt og hagnýtt innlegg í þá umræðu og sýna fram á hvernig miðlæg gagnagátt gæti orðið mikilvægt verkfæri til að bæta aðgengi, samhæfingu, gagnsæi og gæði þjónustu á Íslandi.

Greinargerðin hefur verið send á ráðuneyti dóms- heilbrigðis- félags- og húsnæðismála.

DEILA