0
Karfan þín

Krafa um óháða rannsókn vegna ofbeldis í barnaverndarkerfinu

Rótin sendi í dag, 6. febrúar 2026, eftirfarandi erindi á forsætisráðuneytið:

Krafa um óháða rannsókn vegna ofbeldis í barnaverndarkerfinu

Í Kveik á RÚV hinn 2. febrúar sl. komu fram alvarlegar frásagnir af líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi gegn börnum í vistun á vegum barnaverndaryfirvalda í Bakkakoti á Rangárvöllum á árunum 1975–2002. Frásagnirnar sýna jafnframt hvernig þau kerfi sem áttu að tryggja öryggi barnanna brugðust þeim ítrekað.

Við minnum einnig á að stúlkur sem dvöldust í Varpholti/Laugalandi hafa ekki fengið réttláta málsmeðferð eða viðurkenningu á þeim skaða sem þær lýsa í Greinargerð um meðferðarheimilið í Varpholti og á Laugalandi (2022) sem gefin var út af Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) en hefur nú verið fjarlægð af síðu stofnunarinnar. Rótin skrifaði í kjölfarið greinargerð um greinargerð GEV sem Katrín Jakobsdóttir fékk afhenta í forsætisráðuneytinu 31. janúar 2023.

Rótin minnir á að íslenska ríkið ber ófrávíkjanlegar skuldbindingar samkvæmt stjórnarskrá og alþjóðlegum mannréttindasamningum um að vernda börn gegn ofbeldi, rannsaka grun um alvarleg brot og tryggja þolendum raunhæf úrræði. Þegar fyrir liggja skýrar vísbendingar um kerfisbundið ofbeldi og viðvarandi viðbragðaleysi stjórnvalda hvílir á ríkinu sjálfstæð rannsóknarskylda.

Í ljósi þessa gerir Rótin eftirfarandi kröfur til forsætisráðuneytisins:

  1. Forsætisráðuneytið skal setja á laggirnar óháða og heildstæða rannsókn á störfum Barnaverndarstofu og eftirlitshlutverki ríkisins, með sérstakri áherslu á tímabilið 1995–2021.
  2. Rannsóknin skal vera utan núverandi barnaverndar- og eftirlitskerfis og njóta sjálfstæðs og skýrs umboðs sem uppfyllir rannsóknarskyldu ríkisins samkvæmt mannréttindarétti.
  3. Rannsóknarnefnd skal skipuð án hagsmunaárekstra og hafa fullt og óskorað aðgengi að öllum gögnum ríkis og sveitarfélaga, þar með talið lokuðum skjölum. Rótin bendir á að heilbrigðisráðuneytið brá á það ráð að fá erlendan sérfræðing til að gera stöðumat á áfengis- vímumeðferðarkerfinu og komst þannig fram hjá þeim hagsmunahindrunum lítils samfélags.
  4. Rannsóknin skal unnin á áfallamiðaðan og inngildandi hátt, þar sem frásagnir þolenda eru metnar sem lykilgögn og þátttaka þeirra er á þeirra forsendum.
  5. Rannsóknin skal taka til ábyrgðarkeðja, kerfisbresta og viðbragðaleysis, með sérstakri umfjöllun um Bakkakot, Varpholt/Laugaland, auk sambærilegra úrræða.
  6. Niðurstöður skulu birtar opinberlega í heild sinni og forsætisráðuneytið skal í kjölfarið leggja fram tímasetta aðgerðaáætlun sem felur í sér:
    • opinbera viðurkenningu á ranglæti
    • réttlætis- og bótaleiðir fyrir þolendur
    • nauðsynlegar lagalegar og kerfislægar umbætur

Án slíkrar rannsóknar, birtingar og eftirfylgni bregst íslenska ríkið skyldum sínum gagnvart þeim sem urðu fyrir ofbeldi í umsjá þess og viðheldur kerfisofbeldi í stað þess að rjúfa það.

Rótin treystir því að forsætisráðuneytið axli þessa ábyrgð og tryggi að réttlætið nái fram að ganga.

DEILA