Rótin sendi hinn 3. september eftirfarandi erindi á Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra.
Ágæti heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller,
Rótin vill koma á framfæri alvarlegum áhyggjum af stöðu mála hjá SÁÁ í ljósi nýlegrar fjölmiðlaumfjöllunar um brotthvarf stjórnenda og ágreining milli stjórnar samtakanna og fagfólks um meðferðarstarfið.
Í frétt RÚV 2. september 2026 kemur fram að framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ hafi tilkynnt um starfslok vegna þess sem hún lýsir sem afskiptum stjórnar samtakanna af faglegu heilbrigðisstarfi. Í sömu frétt kemur fram að forstjóri SÁÁ og fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík hafi einnig látið af störfum í ágúst og að fagstjóri á Vík hafi staðfest að uppsögn hennar tengist afskiptum stjórnarinnar af faglegu starfi. Þá er vakin athygli á því að hversu óheppilegt sé að þessi staða sé uppi í miðri innleiðingu á nýjum heildarsamningi SÁÁ við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ).
Rótin telur mikilvægt að þessi staða sé ekki meðhöndluð sem innanhúsmál samtakanna. SÁÁ sinnir miðlægri heilbrigðisþjónustu fyrir almannafé samkvæmt samningi við SÍ. Þjónustan varðar meðal annars fráhvarfsmeðferð, lyfjameðferð við ópíóíðafíkn, göngudeildarþjónustu, dagdeildarmeðferð, eftirmeðferð og aðra þjónustu fyrir fólk með áfengis- og vímuefnavanda. Þegar faglegir stjórnendur heilbrigðisþjónustu lýsa opinberlega áhyggjum af afskiptum stjórnar rekstraraðila af faglegu starfi vakna brýnar spurningar um faglegt sjálfstæði, stjórnarhætti, gæði, öryggi og samfellu þjónustunnar.
Rótin hefur um árabil bent á nauðsyn þess að meðferðarkerfið þróist í átt að nútímalegri, gagnreyndri, réttinda- og notendamiðaðri þjónustu, í samræmi við aðra heilbrigðisþjónustu í landinu. Í úttekt Embættis landlæknis (EL) á gæðum og öryggi þjónustu SÁÁ við konur og börn árið 2016 komu fram alvarlegar athugasemdir. Þar voru stefnumörkun, vinnulag og gæðastarf metin ófullnægjandi, gæðahandbók var ekki fyrir hendi nema að takmörkuðu leyti og gögnum um árangur starfseminnar var ábótavant.
Þótt umbætur hafi orðið frá þeim tíma vekur núverandi staða upp spurningar um hvort faglegt umbótastarf hafi nægan stuðning innan stjórnskipulags SÁÁ og hvernig ráðuneytið, SÍ og EL hyggjast tryggja að gæði og öryggi þjónustunnar raskist ekki. Sérstaklega þarf að liggja fyrir hvar ábyrgðarlínur liggja milli stjórnar samtakanna, framkvæmdastjórnar og faglegra stjórnenda heilbrigðisþjónustunnar.
Skoða þarf stöðuna í samhengi við þjónustusamning SÍ og SÁÁ. Samningurinn tekur til opinberra kaupa á heilbrigðisþjónustu og ætti því að fela í sér skýrar kröfur um gæði, mönnun, faglega ábyrgð, árangursmælingar, upplýsingagjöf og eftirlit. Rótin telur mikilvægt að ráðherra óski eftir skýrum upplýsingum frá SÍ um hvernig stofnunin fylgist með framkvæmd samningsins og bregst við þegar breytingar verða á faglegri forystu eða stjórnun þjónustuveitanda.
Sérstök ástæða er til að bregðast við þar sem ágreiningurinn kemur upp á sama tíma og verið er að innleiða nýjan heildarsamningur SÁÁ og SÍ. Við slíkar aðstæður þarf að liggja fyrir hvort breytingar á faglegri forystu, og meint afskipti stjórnar af faglegu starfi, hafi áhrif á framkvæmd samningsins, gæði þjónustunnar, öryggi sjúklinga eða samfellu meðferðar.
Rótin telur jafnframt brýnt að skýrt liggi fyrir hvernig staðið er að skráningu, gagnaskilum og miðlun upplýsinga í þjónustu SÁÁ. Í eldri samskiptum Rótarinnar við Embætti landlæknis kom fram að embættið hefði ekki það yfirlit yfir upplýsingar um meðferðardaga og brottfall úr meðferð sem óskað var eftir, en að unnið væri að rafrænum rauntímasendingum frá SÁÁ í vistunargrunn heilbrigðisstofnana. Síðar kom fram að sú vinna hefði tafist. Rótin telur mikilvægt að ráðherra fái upplýst hvort þessi skráning sé komin í fullnægjandi horf og hvort gögn um umfang, lengd meðferðar, brottfall, árangur og gæði þjónustu séu aðgengileg stjórnvöldum með þeim hætti sem nauðsynlegt er fyrir raunverulegt eftirlit og stefnumótun.
Þá vill Rótin koma á framfæri áhyggjum af skipan stýrihóps ráðherra um áfengis- og vímuefnameðferð. Samkvæmt frétt ráðuneytisins er hópnum ætlað að efla samskipti og samhæfingu milli þjónustuveitenda, skapa sameiginlegan skilning á hlutverki og ábyrgð aðila og vinna að lausnum, samhæfingu og þróun þjónustu.
Rótin gerir ekki athugasemd við að þjónustuveitendur komi að samráði um framkvæmd þjónustu. Slíkt samráð getur verið nauðsynlegt. Vandinn er hins vegar sá að í hópnum sitja fulltrúar stærstu rekstraraðila meðferðarúrræða, sem hafa verulega fjárhagslega hagsmuni af fyrirkomulagi kerfisins, en ekki er tryggt að notendur þjónustunnar, réttindasamtök og óháðir sérfræðingar eigi þar sæti.
Eitt er að hópnum sé ætlað að vera samráðsvettvangur rekstraraðila um daglega samhæfingu þjónustu. Ef honum er hins vegar ætlað að hafa áhrif á framtíðarskipulag meðferðarkerfisins, hlutverk aðila, verkaskiptingu, gæðakröfur eða þróun þjónustu, telur Rótin skipan hans ófullnægjandi. Kerfi sem á að þróast í átt að notendamiðaðri þjónustu verður ekki mótað án raunverulegrar aðkomu notenda.
Þetta er í samræmi við stöðumat Thomas Kattau fyrir heilbrigðisráðuneytið, þar sem bent er á að íslenska meðferðarkerfið þurfi að færast frá þjónustumiðuðu fyrirkomulagi, þar sem fólk þarf að aðlaga sig að fyrirfram mótuðum úrræðum, yfir í notendamiðaða þjónustu sem tekur mið af þörfum, markmiðum og aðstæðum hvers og eins. Í sömu skýrslu er jafnframt bent á skort á kerfisbundinni gagnaöflun, þörf fyrir samræmda gæðastaðla í meðferð og áhyggjur af ráðandi stöðu stærsta þjónustuveitandans í kerfinu.
Rótin telur því nauðsynlegt að greina skýrt á milli samráðsvettvangs þjónustuveitenda annars vegar og stefnumótandi vinnu um framtíð meðferðarkerfisins hins vegar. Þegar fjallað er um gæðakröfur, hlutverk, ábyrgð, verkaskiptingu, fjármögnun eða þróun þjónustu þarf að tryggja jafnvægi, gagnsæi og að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra.
Rótin leggur því til að ráðherra:
- óski eftir greinargerð frá stjórn SÁÁ um stöðu mála, ástæður brotthvarfs faglegra stjórnenda og hvernig tryggt verði að núverandi staða hafi ekki áhrif á faglegt sjálfstæði, öryggi, gæði, faglega stjórnun og samfellu þjónustunnar
- óski eftir mati Embættis landlæknis á því hvort tilefni sé til sérstakrar eftirfylgni eða úttektar á faglegri stjórnun, gæðastarfi, sjúklingaöryggi og ábyrgðarskiptingu í heilbrigðisþjónustu SÁÁ
- óski eftir greinargerð frá Sjúkratryggingum Íslands um eftirlit með framkvæmd samnings SÍ og SÁÁ, þar á meðal um gæðakröfur, árangursmælingar, mönnun, skýrslugjöf og viðbrögð við breytingum á faglegri stjórn þjónustunnar
- óski sérstaklega eftir mati Sjúkratrygginga Íslands á því hvort núverandi staða hjá SÁÁ hafi áhrif á innleiðingu nýs heildarsamnings, framkvæmd hans eða forsendur um gæði, aðgengi og árangur þjónustunnar
- láti kanna hvort rafræn skráning, gagnaskil og upplýsingar um umfang, brottfall og árangur meðferðar séu komin í fullnægjandi horf
- beiti sér fyrir auknu gagnsæi um þjónustusamning SÍ og SÁÁ, enda varðar hann ráðstöfun almannafjár og miðlæga heilbrigðisþjónustu
- endurskoði umboð og skipan stýrihóps um áfengis- og vímuefnameðferð þannig að notendur þjónustunnar, óháðir sérfræðingar og réttindasamtök komi að vinnunni með skýrum hætti
- setji skýrar reglur um hagsmunaskráningu, fundargerðir, gagnsæi og meðferð mála innan stýrihópsins þar sem einstakir rekstraraðilar hafa beina fjárhagslega eða rekstrarlega hagsmuni
Rótin leggur áherslu á að þessar ábendingar beinast ekki að einstökum starfsmönnum eða notendum þjónustunnar heldur að kerfinu sjálfu. Þegar félagasamtök sinna heilbrigðisþjónustu fyrir opinbert fé þurfa að gilda skýrar kröfur um faglega ábyrgð, gagnreynda þekkingu, öryggi sjúklinga, notendamiðaða þjónustu, virkt eftirlit og gagnsæi gagnvart almenningi.
Rótin óskar eftir fundi með ráðherra eða fulltrúum ráðuneytisins til að ræða þessi sjónarmið nánar.
Virðingarfyllst,
f.h. Rótarinnar

Kristín I. Pálsdóttir
framkvæmdastjóri og talskona Rótarinnar
Meginheimildir
RÚV. 2026. „Segja af sér vegna afskipta stjórnar af faglegu starfi SÁÁ.“ 2. september 2026.
Vísir. 2026. „SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni.“ 1. september 2026.
Sjúkratryggingar Íslands. 2025. „Nýr heildarsamningur við SÁÁ styrkir aðgengi og gæði fíknimeðferðar.“ 19. desember 2025.
Heilbrigðisráðuneytið. 2025. „Stýrihópur skipaður um áfengis- og vímuefnameðferðarkerfið.“ 31. mars 2025.
Embætti landlæknis. 2016. Hlutaúttekt. Meðferðarstofnanir SÁÁ. Úttekt Embættis landlæknis á gæðum og öryggi þjónustu í meðferð kvenna og barna.
Embætti landlæknis. 2017. Skýrsla vegna eftirfylgni. Sjúkrahúsið Vogur og meðferðarstöðin Vík.
Kattau, Thomas. 2024. Review of treatment services for substance use disorders in Iceland. Unnið fyrir heilbrigðisráðuneytið.
Rótin. 2023. Samskipti við Embætti landlæknis og SÁÁ um upplýsingar úr vistunarskrá, meðferðardaga og brottfall úr meðferð. Tölvupóstsamskipti.
Rótin. 2026. Viðbótargreinargerð Rótarinnar við umsögn Sjúkratrygginga Íslands, málsnr. UNU26040014.
Hér má lesa erindið í PDF-skjali: