27. ágúst 2013
Ráð Rótarinnar sendi í dag heilbrigðis- og félagsmálaráðherrum, Kristjáni Þór Júlíussyni og Eygló Harðardóttur, erindi sem Rótin sendi landlækni í apríl en engin viðbrögð hafa borist félaginu við erindinu. Erindið er svohljóðandi:
„Þann 22. apríl sendi Rótin erindi til landlæknis vegna öryggis kvenna í áfengismeðferð. Þrátt fyrir að erindið hafi verið ítrekað tvisvar höfum við engin svör fengið frá embættinu. Við höfum því ákveðið að framsenda þetta mikilvæga erindi á ráðherra heilbrigðis- og félagsmála:
„Hinn 11. þessa mánaðar féll dómur í héraðsdómi Reykjavíkur vegna hrottalegra ofbeldisglæpa gagnvart ungum konum. Hinn dæmdi, sem er 33 ára, hafði áður hlotið langa dóma vegna alvarlegra ofbeldisglæpa gagnvart konum. Í dómsorðinu kemur fram að hann hafi kynnst síðasta fórnarlambi sínu í áfengismeðferð. Þar er á ferð 18 ára stúlka sem hafði leitað sér meðferðar inni á meðferðarstofnun þar sem hún kynntist ofbeldismanninum. Um árás mannsins á þessa ungu konu stendur í dómsorði: „Var árásin hrottaleg og fallin til þess að valda brotaþola ótta um líf sitt.“
Ráð Rótarinnar – félags um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda hefur verulegar áhyggjur af því að dæmdir ofbeldismenn hafi aðgang að ungum konum, og veiku fólki almennt, innan heilbrigðiskerfisins. Líta verður til þess að stór hluti kvenna sem kemur til meðferðar á ofbeldissögu að baki og sú staðreynd gerir þennan hóp enn veikari fyrir hvers kyns valdbeitingu. Hið sama á að mörgu leyti við um unga menn.
Ingólfur V. Gíslason orðar þetta svona í skýrslu sinni um Ofbeldi í nánum samböndum sem unnin var fyrir félags- og tryggingaráðuneytið:
„Í fyrsta lagi er ofbeldi nokkuð sameiginleg reynsla kvenna sem leita á Vog, þær hafa langflestar verið beittar einhverju ofbeldi. Raunar var það samdóma álit viðmælenda, bæði á Vogi og í áhættumeðgöngunni hjá Landspítalanum, að konur sem væru í mikilli neyslu væru með ofbeldi sem „sjálfsagðan“ þátt í sínu lífi og raunar eitthvað sem þær upplifi yfirleitt ekki sem sitt megin vandamál. Þannig var talið að a.m.k. 70 – 80% þeirra kvenna sem stríddu við fíkn hefðu verið beittar einhverju ofbeldi.“
Við krefjumst þess að skapaðar verði aðstæður inni í heilbrigðiskerfinu til að konur geti leitað sér meðferðar við þeim alvarlega sjúkdómi sem alkóhólismi er án þess að eiga það á hættu að lenda í klóm ofbeldismanna.““