0
Karfan þín

Ný rannsókn á komum fólks í heimilisleysi á bráðamóttökur Landspítala

Rótin hefur birt rannsóknarskýrsluna Bráðaþjónusta við heimilislausa einstaklinga – Komur á bráðamóttökur Landspítala á tímabilinu 2020–2024.

Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á umfang og eðli koma fólks í heimilisleysi á bráðamóttökur Landspítala, innlagnir í kjölfar þeirra og þann kostnað sem þjónustan felur í sér. Jafnframt er sérstaklega fjallað um stöðu heimilislausra kvenna og kynjamun í þjónustunotkun.

Rannsóknin byggir á gögnum frá Landspítala og var unnin með tilskildum leyfum Vísindasiðanefndar, Vísindarannsóknanefndar heilbrigðisrannsókna Landspítala og Reykjavíkurborgar. Aðalrannsakandi rannsóknarinnar var Drífa Jónasdóttir. Meðrannsakendur voru Kristín I. Pálsdóttir og Elísabet Guðmundsdóttir. Rannsóknin var unnin með styrk úr rannsóknasjóði Rótarinnar sem hefur notið rausnarlegra stuðnings styrktarverkefnisins Glóðar.

Hagnýtt gildi rannsóknarinnar felst í því að niðurstöðurnar geta stutt við markvissari stefnumótun og forgangsröðun í málaflokki heimilisleysis, eflt samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu og bætt aðgengi jaðarsettra einstaklinga að viðeigandi þjónustu. Þær geta jafnframt nýst við þróun fræðslu og þjálfunar heilbrigðisstarfsfólks og skapað grundvöll fyrir inngrip sem styrkja samfellu í þjónustu, draga úr endurteknum komum og innlögnum og stuðla að hagkvæmari nýtingu heilbrigðiskerfisins. Niðurstöðurnar styðja þannig við markmið heilbrigðisstefnu um að tryggja rétta þjónustu á réttum stað, á réttum tíma með jafnræði að leiðarljósi.

Í skýrslunni eru lagðar fram sjö tillögur að aðgerðum fyrir tímabilið 2026–2030 sem byggja á niðurstöðum rannsóknarinnar. Tillögurnar snúa meðal annars að aukinni samhæfingu þjónustu, eflingu lágþröskuldaúrræða, húsnæðismiðuðum lausnum, bættri gagnasöfnun og aukinni menntun og þjálfun starfsfólks.

Skýrslan hefur verið send heilbrigðisráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra með það að markmiði að styðja við áframhaldandi stefnumótun og þróun þjónustu við fólk í heimilisleysi.

Við vonum að rannsóknin verði mikilvægt framlag til umræðu um hvernig byggja megi upp samfelldari, réttlátari og skilvirkari þjónustu fyrir einn viðkvæmasta hóp samfélagsins.

DEILA