Á komandi vetri býður Rótin upp á hópastarf fyrir konur sem glímt hafa við fíknivanda. Fyrirmynd hópanna kallast á ensku Helping women recover og kemur frá Stephanie Covington sem er frumkvöðull í vinnu með fíkn og áföll hjá konum. Í samræmi við það er lögð áhersla á að fíknivandi sé afleiðing af áfalli (ens. trauma) og/eða öðrum fjölþættum vanda í lífi kvenna og að neyslan því einkenni en ekki frumorsök.
Aðaláhersla í hópunum er á fjóra þætti, sem eru:
- sjálfsmynd
- sambönd og samskipti
- kynverund og
- andlegt líf
Innan þessara þátta eru undirflokkar þar sem farið er ítarlega í þau atriði sem talin eru mikilvæg fyrir konur í bataferli. Í hópastarfinu er spurt hvað kom fyrir konurnar í stað þess að spyrja hvað sé að þeim. Hvernig þær hafi komist af og til hvaða bjargráða hver og ein þeirra hafi gripið. Kynntar eru nýjar aðferðir til að takast á við vandann í stað neyslu.
Markmiðið með hópastarfinu er að konurnar öðlist aukna sjálfsþekkingu sem einstaklingar, í stað þess að skilgreina sig í gegnum sambönd eða stöðu sína, að þær finni styrkleika sína og geti byggt framtíð sína og betra líf á þeim.
Fyrirhugað er að stofna sjálfshjálparhópa, Rótarhópa, í kjölfarið.
Alls er um að ræða 17 skipti á tímabilinu frá 21. ágúst til 27. nóvember 2018. Hvert skipti er 90 mínútur frá kl. 17.15–18.45. Þátttökugjald fyrir hópastarfið er kr. 12.000.
Dagsetningar:
Sjálfsmynd 21. og 28. ágúst, 4. og 11. september
Sambönd og samskipti 18., 21., 25 og 27. september og 2. október
Kynverund 16., 18., 23. og 30. október og 6. nóvember
Andleg upplifun 13., 20. og 27. nóvember
Hópastarfið fer fram í húsnæði Janusar endurhæfingar, Skúlagötu 19.
Leiðbeinendur: Katrín Alfreðsdóttir og Guðrún Ebba Ólafsdóttir
Skráning fer fram á síðu Rótarinnar til 10 ágúst. Haft verður samband við allar sem sækja um áður en hópastarfið hefst.
Sjá enn fremur http://www.rotin.is/konur-studdar-til-bata/.
Bókin A Woman’s Journal. Helping Women Recover sem er vinnubóká ensku fyrir þátttakendur er til sölu hjá félaginu á 6.000 kr. Verkefni í námskeiðinu verða einnig afhent á lausum blöðum á íslensku og það er hverri konu í sjálfsvald sett hvort að hún kaupir bókina. Vinsamlega sendið inn pöntun hér.
Nánar um leiðbeinendur:
Katrín Alfreðsdóttir er félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur Hún fór á ráðstefnuna og námskeiðið Covington Curriculum Conference, í Connecticut í Bandaríkjunum, um aðferðir Stephanie S. Covington sem er sérfræðingur og frumkvöðull í meðferð kvenna með fíknivanda. Covington var aðalfyrirlesari á ráðstefnu Rótarinnar og samstarfsaðila um konur og fíkn haustið 2015. Katrín situr í ráði Rótarinnar.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir er grunnskólakennari og kennir lífsleikni og ensku í Laugalækjarskóla. Hún hefur leitt hópa í Stígamótum og Drekaslóð. Guðrún Ebba hefur tekið virkan þátt í starfi á þessu sviði undanfarin ár. Í október 2011 kom út saga hennar sem Elín Hirst skráði með henni, Ekki líta undan. Hún hefur setið í ráði Rótarinnar frá stofnun.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Janus endurhæfingu og styrkt af velferðarráði Reykjavíkurborgar, Velferðarráðuneyti og Lýðheilsusjóði.