0
Karfan þín

Aðalfundur Rótarinnar 2025

Aðalfundur Rótarinnar verður haldinn miðvikudaginn 7. maí, kl. 16.30, í Kvennaheimilinu að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf sbr. lög félagsins. Kosið verður í ráð sem fer með ákvörðunarvald félagsins milli aðalfunda. Að þessu sinni er kosið um tvö sæti í ráðinu og tvö í vararáði. Við hvetjum áhugasama félaga til að bjóða sig fram eigi síðar en 30. apríl.

Í ráði Rótarinnar sitja fimm aðilar og tveir í vararáði. Ráðið hittist u.þ.b. einu sinni í mánuði eða ca. 9 sinnum á ári. Fundir eru ýmist staðfundir eða á netinu.

Þátttakendur eru vinsamlega beðnir að skrá sig á aðalfundinn hér. Á sama eyðublaði er hægt að skrá framboð til trúnaðarstarfa og tillögur og ályktanir til umræðu á fundinum, einnig má senda þær á netfangið rotin@rotin.is eigi síðar en 30. apríl.

Athygli er vakin á því að tillögur um lagabreytingar skal leggja fram til ráðs a.m.k. fimm dögum fyrir aðalfund, eða eigi síðar en 2. maí og skal senda þær á rotin@rotin.is. Lög Rótarinnar má nálgast hér.

Dagskrá aðalfundar er:

  1. Fundur settur.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.  
  3. Skýrsla ráðs fyrirliðið starfsár.   
  4. Reikningar félagsins lagðir fram til umræðu og gengið til atkvæða um þá.
  5. Lagabreytingar
  6.  Kosning aðal-og varafulltrúa í ráð.
  7. Kosning á skoðunaraðilum reikninga.
  8. Ákvörðun félagsgjalda.
  9.  Tillaga ráðs umstarfsreglur og starfsáætlun næsta starfsár.
  10.  Önnur mál.

Frekari upplýsingar fást hjá Kristínu I. Pálsdóttur í netfanginu kristin@rotin.is eða í síma 793-0090.

Markmið Rótarinnar eru:

  1. Að vera málsvari kvenna og kvára sem eiga sögu um áföll og/eða vímuefnavanda og að beita sér fyrir mannréttindum og velferð þeirra.
  2. Að beita sér fyrir faglegri stefnumótun sem hefur að leiðarljósi skaðaminnkun, mannréttindi og áfalla- og kynjamiðaða þjónustu.
  3. Að stuðla að rannsóknum og beita sér fyrir öflun þekkingar, upplýsinga og úrvinnslu fyrirliggjandi gagna um þessi málefni konum og kvárum til góða.
  4. Að efla samstarf á milli stofnana, samtaka og annarra fagaðila og halda fyrirlestra, standa að ráðstefnum og námskeiðum, eitt eða í samráði við aðra.
  5. Að reka Konukot sem er neyðarskýli fyrir heimilislausar konur í Reykjavík samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg.

DEILA