0
Karfan þín

Samningur Sjúkratrygginga við SÁÁ

Eftir átta mánuði og þrjár kærur til úrskurðarnefndar um upplýsingamál hefur Rótin loksins fengið samning Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) við SÁÁ afhentan í heild. Í samningnum reyndist ekkert ríkis- eða viðskiptaleyndarmál að finna heldur upplýsingar sem almenningur, ekki síst fólk sem þarf sjálft að leita sér meðferðar, á erindi við. Tilgangur Rótarinnar með því að óska eftir samningnum var einmitt að sjá hvaða þjónustu ríkið er að kaupa fyrir fólk sem þarf vímuefnameðferð og hvaða breytingar nýr heildarsamningur hefur í för með sér. Samningurinn er því fagnaðarefni og felur í sér grundvallarbreytingar á meðferðarkerfinu.

Hér má lesa samninginn í heild sinni án yfirstrikana:

DEILA