Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur lagt fyrir Sjúkratryggingar Íslands að veita Rótinni aðgang að samningi stofnunarinnar við SÁÁ frá 19. desember 2025 í heild sinni, ásamt öllum fylgiskjölum. Nefndin hafnar þar með þeim takmörkunum sem SÍ settu á upplýsingarétt Rótarinnar og almennt upplýsingarétt almennings, með því að afmá fjárhags-, rekstrar- og efnisleg grundvallaratriði samningsins.
Rótin óskaði eftir samningnum í febrúar 2026. Þegar hann var loks afhentur höfðu meðal annars verið afmáðar upplýsingar um hámarksgreiðslu SÍ, einingarverð, þjónustumagn, meðferðarlengd, greiðsluforsendur, kostnaðaruppbyggingu og hlutfallslegt vægi launakostnaðar tiltekinna starfsstétta. Hinar afmáðu upplýsingar voru því ekki aðeins einstakar verðupplýsingar heldur meginatriði um hvað ríkið kaupir, í hvaða magni, á hvaða verði og á hvaða forsendum.
Ekki sýnt fram á tjón sem réttlætti leynd
SÍ byggðu synjun sína meðal annars á 9. gr. upplýsingalaga um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni SÁÁ. Úrskurðarnefndin fellst ekki á að þær upplýsingar sem afmáðar voru njóti slíkrar verndar.
Nefndin telur meðal annars að upplýsingar um fyrirkomulag þjónustunnar, meðferðarlengd, tíðni tiltekinna meðferða og hlutfallslegt vægi launakostnaðar starfsstétta séu fyrst og fremst almenns eðlis. Ekki hafi verið sýnt fram á að birting þeirra gæti valdið svo verulegu tjóni á virkum fjárhags- eða viðskiptahagsmunum SÁÁ að rétt væri að takmarka upplýsingarétt almennings.
Nefndin fjallar einnig sérstaklega um upplýsingar um greiðslur samkvæmt samningnum, svo sem hámarksgreiðslu, einingarverð, kostnaðarskiptingu og þjónustumagn. Þar vegur þungt að um er að ræða greiðslur hins opinbera fyrir heilbrigðisþjónustu og þar með ráðstöfun opinbers fjár. Nefndin bendir jafnframt á að fjárhagsrammi samningsins hafi þegar verið kynntur opinberlega, að ekki hafi verið sýnt nægilega fram á raunverulegt tjón af birtingu upplýsinganna og að SÁÁ sé óhagnaðardrifið félag sem stofnað hafi verið til reksturs heilbrigðisþjónustu í þágu almennings.
Nefndin tekur einnig fram að þjónustan sé sérstaks eðlis og ekki verði séð að sambærileg heildarþjónusta sé veitt af öðrum einkaaðilum. Það veikir enn frekar almennar vísanir til hefðbundinna samkeppnishagsmuna.
Veik lagarök Sjúkratrygginga
Rótin gagnrýnir sérstaklega hversu veik og ósértæk lagarök Sjúkratryggingar Íslands færðu fyrir svo víðtækri leynd.
SÍ höfðu þegar árið 2023 endurskoðað sambærilega ákvörðun um aðgang að samningum við SÁÁ. Í bréfi stofnunarinnar til Rótarinnar segir að eftir nánari athugun verði ekki séð að 9. gr. upplýsingalaga komi í veg fyrir afhendingu upplýsinga um heildarverð samninga, þrátt fyrir andstöðu þeirra sem upplýsingarnar fjalla um. SÍ afturkölluðu því fyrri synjun sína að hluta.
Þrátt fyrir þessa fyrri niðurstöðu byggðu SÍ árið 2026 aftur á 9. gr. laganna og báru nú þar að auki fyrir sig 10. gr. um efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins.
Að mati Rótarinnar var sérstaklega langsótt að byggja leynd yfir samningi um opinber kaup á heilbrigðisþjónustu á ákvæði um efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins. Úrskurðarnefndin tekur af allan vafa um það atriði og telur hvorki upplýsingar um greiðslur SÍ til SÁÁ né aðrar umbeðnar upplýsingar falla undir þá undanþágu.
Niðurstaðan er því afdráttarlaus: hvorki 9. né 10. gr. upplýsingalaga réttlættu þær takmarkanir sem SÍ gerðu á aðgangi Rótarinnar og samninginn ber að afhenda í heild.
Hver borgar fyrir að knýja fram upplýsingaréttinn?
Málið vekur jafnframt stærri spurningu um raunverulega stöðu almennings gagnvart stjórnvöldum.
SÍ leituðu afstöðu SÁÁ til upplýsingabeiðninnar og SÁÁ lagðist gegn afhendingu upplýsinganna. SÍ ákváðu síðan að afmá umfangsmiklar upplýsingar með vísan til fjárhags- og viðskiptahagsmuna SÁÁ. Til þess að fá þeirri ákvörðun hnekkt þurfti lítið málsvarafélag að leggja í margra mánaða vinnu við kæruferli gagnvart ríkisstofnun sem hefur yfir að ráða sérfræðingum og lögfræðilegri ráðgjöf.
Rótin fær á þessu ári fimm og hálfa milljón króna í stuðning frá ríkinu og það er því stór biti að leggja í þá vinnu sem fylgir því að fá ríkisstofnun til að virða upplýsingarétt sem úrskurðarnefndin hefur nú staðfest með mjög skýrum hætti. Þegar stjórnvöld synja upplýsingum á svo veikum lagagrundvelli færist kostnaðurinn við að leiðrétta ákvörðunina yfir á almenning og í þessu tilfelli lítil félagasamtök.
Hvert á Rótin að senda reikninginn fyrir þá vinnu?
Upplýsingaréttur almennings er ekki aðeins spurning um það sem stendur í lögum. Réttur sem fæst aðeins framfylgt eftir margra mánaða vinnu, ítarlega röksemdafærslu og kæru getur reynst almenningi og litlum félagasamtökum dýr í framkvæmd og orðið sjálfur þröskuldur í vegi gagnsæis. Stjórnvöld þurfa því að tryggja að stofnanir hafi bæði þekkingu og verklag til að afgreiða upplýsingabeiðnir rétt frá upphafi. Það er ekki aðeins íþyngjandi fyrir almenning þegar send eru svör sem byggja á veikum eða ósértækum lagarökum; það er líka óhagkvæmt fyrir stjórnsýsluna sjálfa að verja tíma og fé í að reisa varnarveggi gegn upplýsingagjöf sem síðar reynast ekki standast lög.
Gagnsæi á að fylgja almannafé – mikilvægt leiðbeiningagildi
Úrskurðurinn hefur að mati Rótarinnar víðtækari þýðingu en fyrir samning SÍ og SÁÁ. Þegar opinberir aðilar kaupa heilbrigðis- og velferðarþjónustu af sjálfstæðum þjónustuaðilum má það ekki leiða til þess að gagnsæi um ráðstöfun almannafjár sé fórnað.
Úrskurðarnefndin bendir á að lögaðilar sem gera samninga við stjórnvöld verði að sæta því að almenningur láti reyna á upplýsingarétt sinn um slíka samninga, meðal annars í þágu gagnsæis í stjórnsýslunni og aðhalds með stjórnvöldum.
Rótin telur úrskurðinn því hafa mikilvægt fordæmis- og leiðbeiningagildi fyrir sambærileg mál um aðgang almennings að samningum stjórnvalda við félagasamtök og einkaaðila . Úrskurðurinn undirstrikar að upplýsingar um ráðstöfun opinbers fjár vega þungt við hagsmunamat samkvæmt upplýsingalögum og að almennar vísanir til viðskipta- eða samkeppnishagsmuna duga ekki einar og sér til að réttlæta leynd. Stjórnvöld þurfa að sýna með sértækum hætti fram á hvaða upplýsingar njóti verndar, hvaða tjóni birting þeirra geti valdið og hvers vegna þeir hagsmunir eigi að vega þyngra en upplýsingaréttur almennings.
Þetta skiptir ekki aðeins máli í samningum um heilbrigðisþjónustu heldur almennt þegar ríki og sveitarfélög kaupa þjónustu af félagasamtökum, fyrirtækjum eða öðrum sjálfstæðum rekstraraðilum fyrir almannafé.
Þegar ríkið ver milljörðum króna í heilbrigðisþjónustu á almenningur að geta fengið upplýsingar um hvað er keypt, hvað það kostar og á hvaða forsendum þjónustan er veitt. Gagnsæiskrafan gildir jafnt þegar opinber þjónusta er falin félagasamtökum eða einkaaðilum.
Úrskurðarnefndin gerir jafnframt athugasemd við málshraða SÍ og telur að stofnuninni hafi borið að skýra Rótinni ástæður tafanna og hvenær niðurstöðu væri að vænta. Nefndin beinir því til SÍ að gæta framvegis að fyrirmælum 17. gr. upplýsingalaga.
Úrskurðurinn er nr. 1389/2026 í máli ÚNU 26040014 og var kveðinn upp 29. september 2026. Hann má lesa hér:
Einnig er bent á að hægt er að kynna sér gögn Rótarinnar um málið hér:
Svartir blettir á upplýsingarétti almennings. 27. apríl 2026
Viðbótargreinargerð við umsögn Sjúkratrygginga Íslands. 13. júlí 2026