Fyrsta fréttabréf INTERACT-verkefnisins er nú komið út. Þar er farið yfir helstu áfanga verkefnisins sem lokið er, þar á meðal útgáfu Landsskýrslu INTERACT, þróun mannréttinda- og kynjamiðaðs tilraunalíkans til að takast á við heimilisleysi kvenna og undirbúning aðlögunar og innleiðingar þess í þátttökulöndum verkefnisins.
Hér má lesa fréttabréfið á íslensku:
INTERACT er alþjóðlegt samstarfsverkefni sem miðar að því að efla kynja- og mannréttindamiðaðar nálganir í þjónustu við konur sem búa við heimilisleysi. Verkefnið, sem stendur yfir frá 1. október 2024 til 30. september 2027, er styrkt af Félagsmálasjóði Evrópu (ESF+) og stýrt af UWAH – Union of Women Associations of Heraklion í Grikklandi. Íslensku samstarfsaðilar INTERACT-verkefnisins eru RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands og Rótin, félagasamtök. Upplýsingar um verkefnið má finna hér.