0
Karfan þín

Tilkynning um aðalfund Rótarinnar 2026

Aðalfundur Rótarinnar verður haldinn miðvikudaginn 12. maí, kl. 16.30, í Kvennaheimilinu að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík.

Tillögur og ályktanir skulu berast á netfang rotin@rotin.is, eigi síðar en 5. maí.

Þátttakendur eru vinsamlega beðnir að skrá sig á aðalfundinn hér. Á sama eyðublaði er hægt að skrá framboð til trúnaðarstarfa, að þessu sinni er kosið um tvö sæti í ráðinu. Við hvetjum áhugasama félaga til að bjóða sig fram eigi síðar en 5. maí.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf sbr. lög félagsins. Kosið verður í ráð sem fer með ákvörðunarvald félagsins milli aðalfunda.

Athygli er vakin á því að tillögur um lagabreytingar skal leggja fram til ráðs a.m.k. fimm dögum fyrir aðalfund, eða eigi síðar en 8. maí.

Dagskrá aðalfundar er, skv. lögum Rótarinnar:

  1. Fundur settur.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla ráðs fyrir liðið starfsár.
  4. Reikningar félagsins lagðir fram til umræðu og gengið til atkvæða um þá.
  5. Lagabreytingar
  6. Kosning aðal- og varafulltrúa í ráð.
  7. Kosning á skoðunaraðilum reikninga.
  8. Ákvörðun félagsgjalda.
  9. Tillaga ráðs um starfsreglur og starfsáætlun næsta starfsár.
  10. Önnur mál.

Frekari upplýsingar fást hjá Kristínu I. Pálsdóttur, framkvæmdastjóra, í netfanginu kristin@rotin.is eða í síma 793-0090.

Markmið Rótarinnar eru:

  1. Að vera málsvari kvenna og kvára sem eiga sögu um áföll og/eða vímuefnavanda og að beita sér fyrir mannréttindum og velferð þeirra.
  2. Að beita sér fyrir faglegri stefnumótun sem hefur að leiðarljósi skaðaminnkun, mannréttindi og áfalla- og kynjamiðaða þjónustu.
  3. Að stuðla að rannsóknum og beita sér fyrir öflun þekkingar, upplýsinga og úrvinnslu fyrirliggjandi gagna um þessi málefni konum og kvárum til góða.
  4. Að efla samstarf á milli stofnana, samtaka og annarra fagaðila og halda fyrirlestra, standa að ráðstefnum og námskeiðum, eitt eða í samráði við aðra.
  5. Að reka Konukot sem er neyðarskýli fyrir heimilislausar konur í Reykjavík samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg.

Lagabreytingatillögur ráðs Rótarinnar

Ráð Rótarinnar leggur fram eftirfarandi lagabreytingar.

Núgildandi grein (leturbreytingar sýna ákvæði sem falla út eða breytast):

1. gr.

Félagið heitir Rótin, félagasamtök. Lögheimili og varnarþing þess eru í Reykjavík.

Rótin er frjáls félagasamtök og ekki rekin í hagnaðarskyni. Allur ágóði sem kann að vera af starfsemi félagsins skal renna aftur til reksturs félagsins.

Verði svona:

Félagið heitir Rótin, félagasamtök. Lögheimili og varnarþing þess eru í Reykjavík. The Root NGO er enska heiti félagsins.

Rótin er frjáls félagasamtök og ekki rekin í hagnaðarskyni. Allur ágóði sem kann að vera af starfsemi félagsins skal renna aftur til reksturs félagsins.

Núgildandi grein (leturbreytingar sýna ákvæði sem falla út eða breytast):

5. gr.

Aðalfundur félagsins skal haldinn vor hvert. Skal hann boðaður á heimasíðu Rótarinnar með tveggja vikna fyrirvara hið minnsta sem og með fundarboði í tölvupósti á félaga félagsins. Í fundarboði skal koma fram hvar og hvenær fundurinn er haldinn, dagskrá fundar og heimildir félaga til þátttöku. Allir félagar sem skráðir hafa verið að lágmarki fimm daga í félagið hafa málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi. Þeir félagar sem hafa verið skráðir í að lágmarki mánuð hafa einnig atkvæðisrétt. Aðalfundur telst löglega boðaður ef fundarboð uppfyllir ofangreind skilyrði.

Verði svona:

Aðalfundur er æðsta vald félagsins og skal hann haldinn vor hvert. Skal hann boðaður á heimasíðu Rótarinnar með tveggja vikna fyrirvara hið minnsta sem og með fundarboði í tölvupósti til félaga. Í fundarboði skal koma fram hvar og hvenær fundurinn er haldinn, dagskrá fundar og heimildir félaga til þátttöku. Allir félagar sem skráðir hafa verið að lágmarki mánuð í félagið hafa atkvæðis-,  málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi. Aðalfundur telst löglega boðaður ef fundarboð uppfyllir ofangreind skilyrði.

Núgildandi grein (leturbreytingar sýna ákvæði sem falla út eða breytast):

7. gr.

Eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund skal ráð Rótarinnar skipa tvo aðila í framboðsnefnd sem tryggir framboð til ráð Rótarinnar og tekur á móti framboðstilkynningum. Félagar Rótarinnar geta skilað tillögum sínum til uppstillingarnefndar. Ráð Rótarinnar skal setja uppstillingarnefnd starfsreglur og skulu þær endurskoðaðar árlega.

Verði svona:

Eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir aðalfund skal ráð Rótarinnar skipa tvo aðila úr ráði félagsins framboðsnefnd sem tryggir framboð til ráðs Rótarinnar og tekur á móti framboðstilkynningum. Ráð Rótarinnar skal setja framboðsnefnd starfsreglur og skulu þær endurskoðaðar árlega.

Framboðsfrestur til ráðsins rennur út 3 dögum fyrir aðalfund. Framboðum skal skilað skriflega til framboðsnefndar. Öll fyrirliggjandi framboð skulu kynnt á vef Rótarinnar við lok framboðsfrests.

Núgildandi grein (leturbreytingar sýna ákvæði sem falla út eða breytast):

8. gr. 

Á aðalfundi skulu kosnir fimm félagar í ráð sem fer með ákvörðunarvald félagsins milli aðalfunda. Einnig skulu kosnir tveir varafulltrúar í ráð félagsins. Ráð Rótarinnar starfar skv. starfsreglum og starfsáætlun sem endurskoðaðar skulu árlega á aðalfundi.

Ráðið hefur umboð til að álykta í nafni félagsins enda sé ályktunin í samræmi við grundvallarmarkmið þess. Ráði félagsins er heimilt að skipa hópa til starfa í nafni félagsins.

Ráð Rótarinnar skal halda fyrsta fund innan tveggja vikna frá aðalfundi. Þar skal ráð skipta með sér verkum að öðru leyti en því sem aðalfundur ákveður. Ráðið skipar sér formann, varaformann, ritara, gjaldkera og einn meðstjórnanda. Ráðskonur skulu kynna sér lög samtakanna og starfa eftir þeim.

Stjórn samtakanna veitir prókúruumboð fyrir hönd samtakanna. Formaður boðar stjórnarfundi, undirbýr þá og stýrir þeim. Varaformaður tekur við verkefnum formanns í fjarveru hans og annast félagatal. Ritari heldur gerðabók ráðs. Gjaldkeri er upplýstur um fjárhagsstöðu félagsins, veitir aðhald í fjármálum og fer yfir ársreikninga á aðalfundi og svarar fyrirspurnum um reikninga og fjárreiður félagsins. Félagar Rótarinnar geta snúið sér til trúnaðarfulltrúa varðandi mál er varða starfsemi samtakanna. Trúnaðarfulltrúa ber skylda að beina þeim málum sem upp koma í réttan farveg í samráði við tilkynnanda. Ráð Rótarinnar ákveður hlutverk meðstjórnanda.

Ráð skal funda að lágmarki sex sinnum á ári. Varafulltrúar hafa rétt til setu á stjórnarfundum með málfrelsi og tillögurétt en hafa eingöngu atkvæðarétt í fjarveru aðalfulltrúa. Fundurinn er atkvæðisbær ef meirihluti ráðsins mætir. Á ráðsfundum ræður einfaldur meirihluti atkvæða ef greidd skulu atkvæði um mál.

Verði svona:

Á aðalfundi skulu kosnir fimm félagar í ráð sem fer með ákvörðunarvald félagsins milli aðalfunda. Einnig skulu kosnir tveir varafulltrúar í ráð félagsins. Ráð Rótarinnar starfar skv. starfsreglum og starfsáætlun sem endurskoðaðar skulu árlega á aðalfundi.  

Ráðið hefur umboð til að álykta í nafni félagsins enda sé ályktunin í samræmi við grundvallarmarkmið þess. Ráði félagsins er heimilt að skipa hópa til starfa í nafni félagsins. 

Ráð Rótarinnar skal halda fyrsta fund innan tveggja vikna frá aðalfundi. Þar skal ráð skipta með sér verkum að öðru leyti en því sem aðalfundur ákveður. Ráðið skipar sér formann, varaformann, ritara, gjaldkera og einn meðstjórnanda. Ráðskonur skulu kynna sér lög samtakanna og starfa eftir þeim. 

Ráð félagsins veitir prókúruumboð fyrir hönd samtakanna. Formaður boðar ráðsstjórnarfundi, undirbýr þá og stýrir.  þeim. Varaformaður tekur við verkefnum formanns í fjarveru hans Ritari heldur gerðabók ráðs. Gjaldkeri er upplýstur um fjárhagsstöðu félagsins af framkvæmdastjóra eða formanni, veitir aðhald í fjármálum og fer yfir ársreikninga á aðalfundi og svarar fyrirspurnum um reikninga og fjárreiður félagsins. Félagar Rótarinnar geta snúið sér til trúnaðarfulltrúa varðandi mál er varða starfsemi samtakanna. Trúnaðarfulltrúa ber skylda að beina þeim málum sem upp koma í réttan farveg í samráði við tilkynnanda. Ráð Rótarinnar ákveður hlutverk meðstjórnanda. 

Ráð skal funda að lágmarki sex sinnum á ári. Varafulltrúar hafa rétt til setu á stjórnarfundum með málfrelsi og tillögurétt en hafa eingöngu atkvæðarétt í fjarveru aðalfulltrúa. Fundurinn er atkvæðisbær ef meirihluti ráðsins mætir. Á ráðsfundum ræður einfaldur meirihluti atkvæða ef greidd skulu atkvæði um mál. 

Formaður og framkvæmdastjóri hafa umsjón með félagatali og ríkir um það trúnaður. Ráð fer með umboð félagsins og ákvörðunarvald milli aðalfunda. Ef ein úr ráðinu hættir á kjörtímabili skal ráðið skipa nýja ráðskonu af félagatali. Ef formaður hverfur úr ráði á kjörtímabili skal varaformaður taka sæti hans. Ef varaformaður, gjaldkeri og ritari hverfa úr ráði skal ráð skipa úr sínum röðum í embættið fram að næsta aðalfundi. 

Núgildandi grein (leturbreytingar sýna ákvæði sem falla út eða breytast):


 III. Kafli – Hagsmunaárekstrar

11. gr.

Komi upp hagsmunaárekstrar sem hamla ráðskonum í ráði Rótarinnar í sínum verkefnum hefur meirihluti ráðsins leyfi til að vísa verkefni tímabundið til annars aðila innan Rótarinnar. Ráð Rótarinnar metur hverju sinni hvað teljist til hagsmunaárekstra og skulu leiðbeiningar nánar útfærðar í starfsreglum Rótarinnar. Ráð Rótarinnar tekur við skriflegum ábendingum frá félögum Rótarinnar um hagsmunaárekstra

Verði svona:

III. Kafli – Hagsmunir og trúnaður

11. gr.  

Komi upp hagsmunaárekstrar sem hamla ráðskonum í ráði Rótarinnar í sínum verkefnum hefur meirihluti ráðsins leyfi til að vísa verkefni tímabundið til annars aðila innan Rótarinnar. Ráð Rótarinnar metur hverju sinni hvað teljist til hagsmunaárekstra og skulu leiðbeiningar nánar útfærðar í starfsreglum Rótarinnar.

Núgildandi grein (leturbreytingar sýna ákvæði sem falla út eða breytast):

12. gr.

Ráð Rótarinnar ræður framkvæmdastýru, ákveður starfskjör hennar og getur veitt henni prókúruumboð fyrir hönd Rótarinnar.

Framkvæmdastýra ber ábyrgð gagnvart ráði Rótarinnar og framfylgir stefnu og ákvörðunum stjórnar. Framkvæmdastýra annast daglegan rekstur samtakanna og kemur fram fyrir hönd þeirra í öllum málum sem varða daglegan rekstur.

Framkvæmdastýra annast reikningshald og önnur mannaforráð í samráði við ráð Rótarinnar. Framkvæmdastýra á alla jafna sæti á ráðsfundum með málfrelsis- og tillögurétt. Henni ber að veita ráði Rótarinnar, skoðunaraðilum og/eða endurskoðendum allar upplýsingar um rekstur samtakanna sem óskað kann eftir.

Verði svona:

12. gr. 

Ráð Rótarinnar ræður framkvæmdastýru, ákveður starfskjör hennar og getur veitt henni prókúruumboð fyrir hönd Rótarinnar. 

Framkvæmdastýra ber ábyrgð gagnvart ráði Rótarinnar og framfylgir stefnu og ákvörðunum ráðsins. Framkvæmdastýra annast daglegan rekstur samtakanna og kemur fram fyrir hönd þeirra. 

Framkvæmdastýra annast reikningshald og önnur mannaforráð í samráði við ráð Rótarinnar. Framkvæmdastýra á alla jafna sæti á ráðsfundum með málfrelsis- og tillögurétt. Henni ber að veita ráði Rótarinnar, skoðunaraðilum og/eða endurskoðendum allar upplýsingar um rekstur samtakanna ef þess er óskað. 

DEILA