0
Karfan þín

Þjálfun fagfólks á vegum INTERACT

Dagana 25.–26. nóvember og 2.–3. desember 2025 stóðu Rótin og RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands – fyrir þjálfun á vegum INTERACT-verkefnisins. Markmiðið var að efla þekkingu og færni fagfólks í samþættri, kynja- og, áfallamiðaðri þjónustu við konur sem búa við heimilisleysi.

Alls tók 31 þátttakandi þátt í þjálfuninni, meðal annars frá heilbrigðis- og félagsþjónustu, sveitarfélögum, lögreglu og félagasamtökum. Fjallað var um kynjaðar birtingarmyndir heimilisleysis, samþætta og heildræna þjónustu, skaðaminnkun, aðgengilega þjónustu og samstarf þvert á þjónustukerfi.

Sex leiðbeinendur komu að kennslunni. Auk þess fluttu tíu sérfræðingar úr skaðaminnkunarþjónustu stutt erindi um starfsemi sína og reynslu. Kennslan byggðist á fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu þar sem þátttakendur miðluðu reynslu og þekkingu úr ólíkum þjónustukerfum.

Endurgjöf þátttakenda var almennt mjög jákvæð. Sérstaklega var bent á mikilvægi samtals, tengslamyndunar og sameiginlegrar ígrundunar fagfólks sem vinnur á ólíkum sviðum. Ábendingar þátttakenda um aukna áherslu á hagnýt verkefni og aðlögun efnis að mismunandi reynslu munu nýtast við áframhaldandi þróun þjálfunar innan INTERACT.

DEILA