0
Karfan þín

INTERACT

Rótin er þátttakandi í INTERACT-verkefninu sem hefur það að markmiði að gera tillögur að innleiðingu áætlunar sem tekur á margþættum vanda heimilislausra kvenna sem lifa við ótryggar aðstæður, svo sem ofbeldi í nánum samböndum, geðrænan vanda og vímuefnavanda.

Verkefnið, sem er til þriggja ára, miðar þannig að því að kortleggja aðstæður heimilislausra kvenna í hverju þátttökuríki og setja fram tillögur að aðgerðum svo bæta megi aðstæður og þjónustu við heimilislausar konur með fjölþættan vanda í þeim löndum sem aðild eiga að verkefninu.

Rótin og RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands, fyrir hönd Háskóla Íslands eru íslensku þátttakendurnir í verkefninu en auk þeirra eru Grikkland, Ítalía, Þýskaland, Portúgal og Rúmenía aðilar að verkefninu. Interact-verkefnið er styrkt af Félagsmálasjóði Evrópu (ESF+).

  • Fyrsta fréttabréf INTERACT

    Fyrsta fréttabréf INTERACT-verkefnisins er nú komið út. Þar er farið yfir helstu áfanga verkefnisins sem lokið er, þar á meðal útgáfu Landsskýrslu INTERACT, þróun mannréttinda- og kynjamiðaðs tilraunalíkans til að takast á við heimilisleysi kvenna og undirbúning aðlögunar og innleiðingar þess í þátttökulöndum verkefnisins. Hér má lesa fréttabréfið á íslensku: INTERACT er alþjóðlegt samstarfsverkefni sem…

  • Áfallið í stofunni: Hvernig áfallamiðuð nálgun umbreytir þjónustu við konur

    Dr. Julie Schamp heldur erindi um áfallamiðaða nálgun og konur hinn 1. desember í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands kl. 12:00-14:00. Fyrirlesturinn er í boði Evrópuverkefnisins INTERACT, sem RIKK og Rótin eru þátttakendur í, og í samstarfi Heilbrigðisvísindasvið/Sálfræðideild HÍ, Félagsvísindasvið/Félagsráðgjafardeild HÍ, Félagsráðgjafafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er…

  • Fréttatilkynning – INTERACT

    Landsskýrsla INTERACT-verkefnisins varpar ljósi á helstu gloppur og tækifæri í málaflokki heimilislausra kvenna. Verkefnisnúmer: 101172611 — INTERACT — ESF-2023-HOMELESS Verkefnið Intersectional Approach to Combating Homelessness for Women (INTERACT) birti nýverið fyrstu áfangagögn verkefnisins – Landsskýrslu INTERACT. Hún veitir innsýn í það hvernig sex Evrópuríki, Þýskaland, Grikkland, Ísland, Ítalía, Portúgal og Rúmenía, nálgast málaflokk heimilislausra kvenna.…

  • Rýnihópar um heimilisleysi kvenna

    Hinn 10. mars hittust tveir rýnihópar sem skipulagðir voru af Rótinni innan INTERACT-verkefnisins, sem styrk er af Félagsmálasjóði Evrópu (ESF+). INTERACT-verkefnið hefur það að markmiði að gera tillögur að innleiðingu áætlunar sem tekur á margþættum vanda heimilislausra kvenna sem lifa við ótryggar aðstæður, svo sem ofbeldi í nánum samböndum, geðrænan vanda og vímuefnavanda. Rýnihóparnir voru hluti af hæfnihluta…

  • Interact – Evrópuverkefni

    Rótin er þátttakandi í INTERACT-verkefninu sem hefur það að markmiði að gera tillögur að innleiðingu áætlunar sem tekur á margþættum vanda heimilislausra kvenna sem lifa við ótryggar aðstæður, svo sem ofbeldi í nánum samböndum, geðrænan vanda og vímuefnavanda. Verkefnið, sem er til þriggja ára, miðar þannig að því að kortleggja aðstæður heimilislausra kvenna í hverju þátttökuríki og setja fram…

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér og svo er hægt að fylgjast með á samfélagsmiðlum:

INTERACT Linkedin   ❙   INTERACT Facebook   ❙   INTERACT Instagram

Hafa má samband við verkefnastjóra í tölvupósti