Leiðsagnarhópurinn Sjálfsuppgötvun og valdefling ― Fyrir stúlkur og ungar konur ― styður stúlkur og ungar konur í að styrkja sjálfsmynd sína og að öðlast rödd. Unglingsárin eru tími mikilla uppgötvana, áskorana og þroska. Ýmislegt í okkar kynjuðu menningu gerir þessar áskoranir snúnar fyrir stúlkur og margar þeirra ná ekki að öðlast eigin rödd eða jákvæða sjálfsímynd á þessu mikilvæga þroskaskeiði.
Fyrir hverjar
Námskeiðið er sérstaklega ætlað stúlkum og ungum konum á aldrinum 18-25 ára. Skráning fer fram hér!
Aðferð
Námsefnið tekur mið af áfallareynslu og miðast við reynsluheim stúlkna og þau áhrif sem það hefur á líf þeirra að alast upp í veruleika kynjamisréttis. Unnið er með gagnvirkar æfingar og leitast við að byggja upp jákvæðra sjálfsmynd, færni í heilbrigðum samskiptum kynjanna og sálræna og tilfinningalega vellíðan. Þá er fjallað um notkun fíkniefna, kynferðismál og hvernig hægt er að stuðla að bjartri framtíð. Einnig er komið inn á málefni stúlkna í réttarvörslukerfinu. Námskeiðið byggir á námsefni dr. Stephanie Covington Voices: A Program of Self- Discovery and Empowerment for Girls.
Markmið:
- Að hjálpa stúlkum/ungum konum að skilja stöðu sína og áhrif þess að vera kona í heimi þar sem kynjamisrétti er viðvarandi
- Að styðja þátttakendur í úrvinnslu áfalla og beina þeim inn á braut vaxtar eftir áföll (ens. post-traumatic growth) með kynjasjónarmið að leiðarljósi
- Að þátttakendur öðlist aukinn skilning á
- Sjálfi
- Samböndum
- Heilbrigðu líferni (líkamlegu, tilfinningalegu, andlegu)
- Framtíðarsýn
Hvenær
Næsta hópur hefst haustið 2020.
Leiðbeinendur og verkefnisstjórn
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Guuðrún Ebba Ólafsdóttir og Katrín G. Alfreðsdóttir. Verkefnisstjóri er Kristín I. Pálsdóttir. Sjá nánar.
Skipulag
Námskeiðið er alls í 18 skipti.
Hámarksfjöldi eru 10 þátttakendur.