Hinn 21. nóvember 2014 var Rótinni veitt réttlætisviðurkenning Stígamóta fyrir framúrskarandi störf í þágu jafnréttis og gegn ofbeldi.
Í rökstuðningi segir:
Rótin, félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda, hefur hafið löngu tímabæra umræðu um konur, fíkn, áföll og ofbeldi. Jafnframt hefur sjónum verið beint að sérstökum meðferðarúrræðum fyrir konur. Félagið hefur leitast við að koma á samstarfi milli stofnana, samtaka og annarra fagaðila sem fást við vímuefnameðferð, ofbeldi og úrvinnslu áfalla. Gífurlega mikilvægt verkefni sem vonandi mun ganga sem allra best.
Aðrir sem fengu réttlætisviðurkenninguna að þessu sinni voru Björg G. Gísladóttir, rithöfundurinn Steinar Bragi, rappsveitin Reykjavíkurdætur, Jóhannes Kr. Kristjánsson, Druslugangan og Tabú. Hér má sjá frétt með frekari upplýsingum.