Áfallameðferð í litlum hópi fyrir konur verður í boði í samstarfi Rótarinnar og Grænuhlíðar fjölskyldumiðstöðvar í vor og hefst 3. mars og lýkur 12. maí.
Tímasetning: | Mánudagar kl.15:30 til 16:30 |
Tímabil: | 3. mars til 12. maí – 10 skipti |
Skráning: | Fyrir 17. febrúar hér |
Verð | 36.000 kr. |
Leiðbeinendur: | Margrét Gunnarsdóttir og Harpa Katrín Gísladóttir |
Staðsetning: | Grænahlíð, Sundagarðar 2, 104 Reykjavík |
Skráðu þig hér
Áfall getur verið afmörkuð erfið reynsla sem veldur áfallastreitu (PTSD) eða endurtekin, viðvarandi erfið reynsla, oftast í æsku, sem veldur flókinni áfallastreitu (e. complex PTSD).
Áfallastreita lýsir sér meðal annars með kvíðaeinkennum, endurliti (e. flashback) og forðun. Flókinni áfallastreitu fylgja einnig neikvæð áhrif á sjálfsmynd, erfiðleikar með tilfinningastjórnun og áskoranir í samböndum við annað fólk.
Áfallameðferð er gjarnan skipt í þrjú stig, þar sem fyrsta stigið er að byggja upp skilning, stöðugleika og þol fyrir erfiðum tilfinningum, annað stigið snýst meira um beina úrvinnslu áfalla og þriðja stigið er að melta reynslu og aðlaga árangur meðferðar að daglegu lífi.
Hér er um að ræða fyrsta stig áfallameðferðar sem snýst um að skilja betur áhrif áfalla og erfiðrar reynslu á daglegt líf og byggja upp innri stöðugleika og jafnvægi.
Almenn markmið:
- Auka skilning á áhrifum áfalla/áfalls
- Draga úr upplifun á einangrun og einmanakennd.
- Minnka upplifun af skömm, sjálfsásökun og tilfinningu fyrir að vera ekki í lagi.
- Styrkja samkennd í eigin garð.
- Auka getu til að tempra áfallatengda líðan.
- Styrkja bjargráð.
- Auka færni til að mynda örugg sambönd.
- Styrkja upplifun af innri stjórn og valdeflingu.
Innihald funda:
- Áhrif áfalla – áfallastreituviðbrögð
- Öryggi og sjálfsumönnun
- Traust
- Að muna
- Skömm og sjálfsásökun
- Samkennd í eigin garð
- Reiði
- Sjálfsmynd – líkamsímynd
- Sambönd
- Að skilja fortíðina og bataferlið
Meðferðin byggir á gagnreyndu námskeiði sem þróað hefur verið af dr. Judith Herman, dr. Diya Kallivayalil og samstarfsteymi við Victims of Violence Program við Cambridge Health Alliance.
Leiðbeinendur
- Margrét Gunnarsdóttir, sálmeðferðarfræðingur MSc og sérfræðingur í geðsjúkraþjálfun með áfallameðferð sem sérsvið. Margrét hefur m.a. starfað hjá EMDR-stofunni, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sem verktaki hjá Miðstöð foreldra og barna og sem sérfræðingur í starfsendurhæfingu hjá VIRK.
- Harpa Katrín Gísladóttir, er með cand.psych. gráðu frá Háskóla Íslands. Hún hefur meðal annars sinnt meðferðarstarfi á Geðdeild Landsspítalans, hjá Sálfræðingum Höfðabakka, Heilsustofunun NLFÍ og Sálfræðiráðgjöfinni áður en hún hóf störf hjá Grænuhlíð. Auk þess hefur hún haldið ýmis námskeið.
Hópurinn hittist ætíð á mánudögum kl. 15:30 til 16:30. Sjá dagsetningar hér fyrir neðan.
Tími | Dags. | Tími | Dags. |
1. | 3. mars | 6. | 7. apríl |
2. | 10. mars | 7. | 14. apríl |
3. | 17. mars | 8. | 28. apríl |
4. | 24. mars | 9. | 5. maí |
5. | 31. mars | 10. | 12. maí |