Síðasti viðburður ársins hjá Rótinni verður aðventukvöldið okkar en þá fáum við til okkar góða gesti til að skemmta okkur.
Skáldkonurnar Eva Rún Snorradóttir, Vigdísi Grímsdóttir og Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir koma í heimsókn en þær eru allar að gefa út bækur fyrir jólin.
Eva Rún er meðlimur í Kviss Búmm Bang en var að gefa út ljóðabókina Heimsendir fylgir þér alla ævi. Hér má sjá viðtal við hana í Kiljunni: http://www.ruv.is/
Vigdís Grímsdóttir var að gefa út bókina Dísusaga – konan með gulu töskuna. Hér er Vigdísi í Kiljunni: https://www.youtube.com/
Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir var að gefa út bókina Kona með maga og má hér sjá viðtal við Þórunni í Kiljunni: http://www.ruv.is/
Síðast en ekki síst ætla þær Lilja Steingrímsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir í hljómsveitinni Ellin að spila nokkur lög fyrir okkur.
Aðventukvöldið er haldið í Kvennaheimilinu að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík, þann 11. desember kl. 20.
Allir velkomnir á Rótarkvöld, konur og karlar!
Við ætlum að vera með léttar veitingar en að venju eru kvöldin fjármögnuð með samskotum svo komið endilega með klink í baukinn.
Viðburðurinn er á Facebook: https://www.facebook.com/events/433271086774683/.